Gervigreind sem bæði leiðbeinir og klárar bókanir
Við hjá Menni höfum nú bætt öflugri nýjung við vörulínuna okkar: Spjallmenni, Póstmenni og Raddmenni eru nú að fullu samhæfð bókunarkerfinu Bókun, a Tripadvisor company.

Viðskiptavinir geta því ekki aðeins fengið svör við spurningum sínum á augabragði, heldur einnig bókað, breytt eða afbókað þjónustu í gegnum gervigreindarfulltrúann, án afskipta starfsfólks.
Gervigreindarfulltrúinn verður þannig bæði upplýsingaveita og sölumaður sem vinnur allan sólarhringinn, alla daga ársins, á öllum helstu samskiptaleiðum fyrirtækisins.
Í tilefni af nýjunginni bjóðum við fyrirtækjum sem nota Bókun sérstakt kynningartilboð:
- Ókeypis uppsetning og innleiðing.
- 30 daga prufuáskrift, algjörlega án skuldbindinga.
Hvort sem fyrirtækið þitt fær mikið af fyrirspurnum eða vill einfaldlega bjóða upp á hraðari og skilvirkari þjónustu er þetta frábært tækifæri til að kynnast krafti gervigreindar í verki.
