

Innleiðingarferli lausnarinnar algjörlega “fool proof” og það hefur verið ánægjulegt að vinna með Menni teyminu.
Menni leggur sig fram við að gera rekstur þjónustufyrirtækja skilvirkari. Markmið okkar er að bæta upplifun viðskiptavina með innleiðingu gervigreindar á öllum samskiptamiðlum. Með því að innleiða lausn Menni getur þú veitt tafarlaus svör allan sólarhringinn og þar með bætt upplifun viðskiptavinarins til muna.
Dæmi um fyrirtæki sem treysta Menni
















Róbert Híram
Framkvæmdastjóri (CEO)

Ástvaldur Ari
Rekstrarstjóri (COO)
Markmið Menni er að gera rekstur þjónustufyrirtækja skilvirkari. Við smíðum gervigreindar þjónustufulltrúa sem svara fyrirspurnum allan sólarhringinn á yfir 100 tungumálum, þar á meðal íslensku: í spjalli á vefsíðu og samskiptamiðlum (Spjallmenni), í síma (Raddmenni) og í tölvupósti (Póstmenni).
Lausnirnar eru sniðnar að ferða- og þjónustufyrirtækjum og tengjast þeim kerfum sem fyrirtækin nota nú þegar, til dæmis Bókun. Menni sér um innleiðinguna og fulltrúinn vísar málum til starfsfólks þegar þörf er á.
Bættu þjónustuna og lækkaðu rekstrarkostnað með gervigreindarlausnum Menni
Við erum með puttann á púlsinum þegar það kemur að gervigreind og erum alltaf að innleiða nýja tækni í okkar lausnir.
Þegar við tökum að okkur ný verkefni þá vinnum við þau vel og vandlega. Við setjum fagmennsku í fyrsta sæti.
Það skiptir okkur máli að nýta tímann vel og að vinna skilvirkt. Öll vinna er vönduð en vinnubrögð eru snögg.
Við störfum í nánu samstarfi við okkar viðskiptavini og verkaskipting er skýr innan veggja Menni.
Við pössum að viðskiptavinir okkar viti alltaf að hverju við erum að vinna með því að taka saman skýrar skýrslur.
Okkar spjallmenni eru öll í samræmi við GDPR (persónuverndarlöggjöf), tryggja löglega og gagnsæja meðhöndlun viðkvæmra upplýsinga.
Fyrsta skrefið í ferlinu er stuttur fundur með teyminu.