Fara beint í efni

Tilkynningar

  1. Ný vefsíða Go Car Rental Iceland á fartölvuskjá
    Samstarf

    Go Car Rental hlaut WebAwards 2024

    Við erum stolt af vinum okkar hjá Go Car Rental Iceland sem hlutu á dögunum viðurkenningu frá WebAwards fyrir bestu vefsíðu innan ferðamannageirans á alheimsvísu árið 2024!

  2. Knútur Rafn Ármann, eigandi Friðheima, í gróðurhúsinu
    Samstarf

    Menni og Friðheimar hefja samstarf

    Gervigreindarfyrirtækið Menni og Friðheimar hafa hafið samstarf sem markar tímamót í þjónustu veitingastaða á Íslandi. Friðheimar verða þar með fyrsti veitingastaður landsins til að innleiða sérhæfðan gervigreindarfulltrúa sem svarar fyrirspurnum og aðstoðar viðskiptavini allan sólarhringinn.

  3. Gervigreindarfulltrúarnir Rakel, Inga og Sunna hjá Visit Reykjanes, Inside the Volcano og Visit South Iceland
    Samstarf

    Fleiri bætast í hópinn hjá Menni!

    Það er einstaklega ánægjulegt að tilkynna um samstarf við þrjá nýja og frábæra aðila í íslenskri ferðaþjónustu. Gervigreindarfulltrúarnir eru nú reiðubúnir til framúrskarandi þjónustu allan sólarhringinn, allan ársins hring, á vefsíðum félaganna.

  4. Tenging Menni við Bókun.io: gervigreindarfulltrúi sýnir lausar ferðir í spjalli
    Vörunýjungar

    Gervigreind sem bæði leiðbeinir og klárar bókanir

    Við hjá Menni höfum nú bætt öflugri nýjung við vörulínuna okkar: Spjallmenni, Póstmenni og Raddmenni eru nú að fullu samhæfð bókunarkerfinu Bókun, a Tripadvisor company.

  5. Frá vinstri: Haukur Baldvinsson, Hermann Albertsson og Anna Bergmann frá Slippfélaginu, og Daníel Spanó, Róbert Híram og Ástvaldur Ari frá Menni
    Menni í fjölmiðlum

    Slippfélagið og Menni hefja samstarf um gervigreinda þjónustu

    Slippfélagið og Menni hafa skrifað undir samstarfssamning um innleiðingu gervigreindar í þjónustuferla málningarverksmiðjunnar. Vísir greindi frá. Lausnin á að svara flestöllum samskiptum viðskiptavina og annarra sem berast Slippfélaginu.

  6. Samstarf

    Menni og 1819 í samstarf um sólarhringsþjónustu með gervigreind

    Menni hefur gert samstarfssamning við upplýsinga- og þjónustufyrirtækið 1819 um að nýta gervigreind til að gera þjónustu aðgengilega allan sólarhringinn. Fyrsta skrefið verður að Raddmenni Mennis svarar símtölum utan hefðbundins opnunartíma, en 1819 hyggst síðar taka fleiri lausnir frá Menni í notkun.

  7. Fulltrúar Menni og Blindrafélagsins, ásamt leiðsöguhundi, á skrifstofu félagsins
    Samstarf

    Menni hefur skrifað undir samstarfssamning við Blindrafélagið

    Menni hefur skrifað undir samstarfssamning við Blindrafélagið. Samningurinn felur í sér innleiðingu á Raddmenni, gervigreindarlausn sem svarar og leysir úr fyrirspurnum skjólstæðinga félagsins símleiðis, allan sólarhringinn.

  8. Freyja, raddmenni Sjóbaðanna í Hvammsvík, sýnd sem ung kona í íslenskri náttúru
    Menni í fjölmiðlum

    Freyja svarar á íslensku

    Raddmennið Freyja, sem hefur svarað símtölum hjá Sjóböðunum í Hvammsvík, er nú farið að spjalla við viðskiptavini á íslensku. mbl.is greindi frá. Hingað til hafði Freyja svarað á ensku í síma, þótt hún gæti svarað á íslensku í tölvupósti og spjalli.

  9. Stofnendur Menni, Ástvaldur Ari Guðmundsson, Daníel Spanó og Róbert Híram
    Menni í fjölmiðlum

    RÚV fjallar um Raddmenni frá Menni

    RÚV fjallaði um Menni og Raddmenni, gervigreindarlausn sem svarar símtölum í þjónustuverum fyrirtækja. Í fréttinni kom fram að nokkrir tugir fyrirtækja hefðu tekið þjónustuna í notkun, mörg þeirra í ferðaþjónustu, svo sem baðlón, bílaleigur og hótel, og að um 70% erinda væru afgreidd án mannlegrar aðkomu.

  10. Merki Menni og undirmerkin Spjallmenni, Raddmenni og Póstmenni ásamt litum
    Fyrirtækið

    Hvað merkir lógóið okkar hjá Menni?

    Lógó Menni hannaði Einar Gylfason. Einar útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1991 og hefur starfað sem hönnuður og listrænn stjórnandi bæði hér heima og í Bandaríkjunum. Hann hefur unnið á litlum og stórum auglýsingastofum og frá 2010 hefur hann rekið Leynivopnið, hönnunarstofu með áherslu á auðkenni og ímynd fyrirtækja.

  11. Skúli Mogensen
    Menni í fjölmiðlum

    Skúli Mogensen fjárfestir í ungum frumkvöðlum

    Skúli Mogensen og Ólafur Hand hafa fjárfest í Spjallmenni.is, fyrirtæki sem ungir frumkvöðlar um tvítugt stofnuðu og heitir nú Menni. Viðskiptablaðið greindi frá.

  12. Skúli Mogensen, framkvæmdastjóri Hvammsvíkur Sjóbaða, í Hvammsvík
    Menni í fjölmiðlum

    Gervigreindin svarar fyrirspurnum viðskiptavina

    Hvammsvík Sjóböð og ABC Hótel hafa tekið í notkun sjálfvirka þjónustulausn frá Spjallmenni.is, sem heitir nú Menni. Viðskiptablaðið greindi frá.

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.