Menni og Friðheimar hefja samstarf
Gervigreindarfyrirtækið Menni og Friðheimar hafa hafið samstarf sem markar tímamót í þjónustu veitingastaða á Íslandi. Friðheimar verða þar með fyrsti veitingastaður landsins til að innleiða sérhæfðan gervigreindarfulltrúa sem svarar fyrirspurnum og aðstoðar viðskiptavini allan sólarhringinn.

Menni hefur þróað og innleitt spjallmennið Fríðu á vefsíðu Friðheima. Fríða leiðbeinir gestum með bókanir, dagskrá og svör við algengum spurningum, allt frá matseðli og opnunartíma til sérhæfðrar þjónustu staðarins. Lausnin gerir viðskiptavinum kleift að fá svör án biðar og óháð opnunartíma.
„Friðheimar leggja alltaf áherslu á að þjónusta viðskiptavini sem best. Með þessari nýjung viljum við tryggja að allir fái fljóta og örugga aðstoð þegar þeir þurfa á henni að halda.“
