Fara beint í efni
Allar tilkynningar
Samstarf

Menni hefur skrifað undir samstarfssamning við Blindrafélagið

Menni hefur skrifað undir samstarfssamning við Blindrafélagið. Samningurinn felur í sér innleiðingu á Raddmenni, gervigreindarlausn sem svarar og leysir úr fyrirspurnum skjólstæðinga félagsins símleiðis, allan sólarhringinn.

Fulltrúar Menni og Blindrafélagsins, ásamt leiðsöguhundi, á skrifstofu félagsins

Með lausninni er stigið stórt skref í átt að auknu stafrænu aðgengi fyrir félagsmenn og alla þá sem vilja nálgast upplýsingar um þjónustu Blindrafélagsins.

Raddmennið auðveldar aðgengi að upplýsingum og gögnum sem áður voru ill- eða óaðgengileg blindum og sjónskertum.

Starfsfólk Menni gefur vinnu sína við uppsetningu þjónustunnar og vonast til að hún verði orðin virk strax á nýju ári.

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.