Allar tilkynningar
Menni í fjölmiðlum
Gervigreindin svarar fyrirspurnum viðskiptavina
Hvammsvík Sjóböð og ABC Hótel hafa tekið í notkun sjálfvirka þjónustulausn frá Spjallmenni.is, sem heitir nú Menni. Viðskiptablaðið greindi frá.

Lausnin byggir á gervigreind og tengir og svarar flestöllum samskiptum sem berast í gegnum tölvupóst, Google, Meta, WhatsApp, Booking og fleiri leiðir. Markmiðið er að auka gæði svörunar og þjónustu við viðskiptavini og spara um leið umtalsverðan kostnað.
Í umfjölluninni kemur fram að Skúli Mogensen, framkvæmdastjóri Hvammsvíkur Sjóbaða og ABC Hótels, hafi valið Spjallmenni.is eftir að hafa skoðað fjölda gervigreindarlausna, og að lausnin hafi þegar einfaldað svörun fyrirspurna hjá báðum fyrirtækjum.
