Fara beint í efni
Allar tilkynningar
Menni í fjölmiðlum

Skúli Mogensen fjárfestir í ungum frumkvöðlum

Skúli Mogensen og Ólafur Hand hafa fjárfest í Spjallmenni.is, fyrirtæki sem ungir frumkvöðlar um tvítugt stofnuðu og heitir nú Menni. Viðskiptablaðið greindi frá.

Skúli Mogensen

Fyrirtækið leggur áherslu á hagnýtingu gervigreindar og hefur þróað lausn fyrir þjónustufyrirtæki sem tengir, flokkar og svarar flestöllum samskiptum sem berast í gegnum spjallmenni á vefsíðu, tölvupóst, Google, Meta, WhatsApp, Booking og fleiri leiðir. Gervigreindarfulltrúinn svarar á yfir 100 tungumálum, þar á meðal íslensku.

Stofnendur fyrirtækisins eru Ástvaldur Ari Guðmundsson, Daníel Ólafur Stefánsson Spanó og Róbert Híram Ágústsson.

Lausnin var þá þegar í notkun hjá sjóböðunum í Hvammsvík og ABC Hotel í Keflavík. Í umfjölluninni segir Skúli að lausnin og stofnendurnir hafi vakið áhuga hans og Ólafs á að fjárfesta í félaginu, enda séu tækifærin fyrir slíkar lausnir á komandi árum mikil.

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.