Allar tilkynningar
Samstarf
Hver var aftur vinningstalan í happdrætti Félags heyrnarlausra í fyrra?
Nýi gervigreindarfulltrúi félagsins man það nákvæmlega!

Menni og Félag heyrnarlausra hafa hafið spennandi samstarf með innleiðingu nýs gervigreindarfulltrúa á vefsvæði félagsins.
Markmiðið er einfalt: að efla aðgengi félagsfólks og allra annarra að upplýsingum og gera þjónustuna skilvirkari, allan sólarhringinn, allan ársins hring.
Við erum spennt fyrir samstarfinu og þeim möguleikum sem gervigreindin færir starfsemi Félags heyrnarlausra. Við mælum eindregið með því að kíkja á vef félagsins og spjalla við Hervöru.
