Fara beint í efni
Allar tilkynningar
Fyrirtækið

Hvað merkir lógóið okkar hjá Menni?

Lógó Menni hannaði Einar Gylfason. Einar útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1991 og hefur starfað sem hönnuður og listrænn stjórnandi bæði hér heima og í Bandaríkjunum. Hann hefur unnið á litlum og stórum auglýsingastofum og frá 2010 hefur hann rekið Leynivopnið, hönnunarstofu með áherslu á auðkenni og ímynd fyrirtækja.

Merki Menni og undirmerkin Spjallmenni, Raddmenni og Póstmenni ásamt litum

Aðspurður um merkingu lógósins segir Einar:

„Lógóið er teiknað sem tilvitnunarmerki [gæsalappir] og er raðað upp þannig að þau mynda bókstafinn M. Hugmyndin eru samskipti, bæði talað og ritað mál. Tilvitnunarmerkin eru einnig vísun í þær vörur sem Menni býður upp á: Spjallmenni, Raddmenni og Póstmenni en í þeim undirmerkjum eru tilvitnunarmerkin með skírskotun í upphafsstafina S, R og P.“

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.