Fara beint í efni
Allar tilkynningar
Samstarf

Go Car Rental hlaut WebAwards 2024

Við erum stolt af vinum okkar hjá Go Car Rental Iceland sem hlutu á dögunum viðurkenningu frá WebAwards fyrir bestu vefsíðu innan ferðamannageirans á alheimsvísu árið 2024!

Ný vefsíða Go Car Rental Iceland á fartölvuskjá

Dómnefnd WebAwards, sem skipuð er sérfræðingum víðs vegar að úr heiminum, metur vefsíður út frá nokkrum þáttum. Fyrst og fremst þarf hönnun og útlit að vera til fyrirmyndar. Þá skipta virkni og tæknileg frammistaða, til dæmis hraði vefsíðunnar, einnig miklu máli.

Það sem tæknifólk og fyrirtækjaeigendur líta oft fram hjá eru þau neikvæðu áhrif sem spjallmenni og aðrar viðbætur (e. widgets) geta haft á frammistöðu og hraða vefsíðna, sem dregur úr leitarvélabestun.

Þess vegna segjum við með stolti frá því að Spjallmennin okkar hjá Menni eru sérhönnuð til að koma í veg fyrir þessi vandamál. Þau hafa engin áhrif á hraða vefsíðna, svo vefsíður viðskiptavina okkar haldast hraðvirkar og notendavænar.

Gervigreindarfulltrúann Freydísi má finna í formi Spjallmennis á vefsíðu Go Car Rental Iceland. Freydís hóf störf hjá bílaleigunni fyrr í sumar og er þar reiðubúin til þjónustu allan sólarhringinn, allan ársins hring, án þess að hægja á vefsíðunni.

Við mælum eindregið með því að kíkja á nýja vefsíðu Go Car Rental Iceland og spjalla í leiðinni við Freydísi.

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.