Póstmenni: sjálfvirk svörun, flokkun og forgangsröðun tölvupósta
Með Póstmenni, einni af lausnum Menni, sparar þú tíma og eykur þjónustustig.

Póstmenni tengir sérsniðinn gervigreindarfulltrúa við tölvupóstkerfið þitt. Hægt er að tengja Póstmenni við flestöll hefðbundin tölvupóstkerfi, þar á meðal Gmail, Outlook, Freshdesk, Zendesk, HubSpot, Front og Zoho Desk.
Þegar Póstmenni er tengt tölvupóstkerfinu getur gervigreindarfulltrúinn þinn sjálfvirkt:
- Svarað tölvupóstum eða undirbúið drög að svörum (e. drafts).
- Flokkað tölvupósta í ákveðin innhólf.
- Úthlutað erindum til ákveðins aðila eða deildar.
- Forgangsraðað tölvupóstum eftir settum skilyrðum.
- Lokað tilteknum málum, enda les fulltrúinn allan þráðinn og áttar sig á innihaldinu.
- Aflað gagna um innihald tölvupósta sem birtast í tölfræði bakenda Menni, til dæmis hvernig fyrirspurnir skiptast í flokka og álagspunkta milli vikna.
Ekkert Póstmenni er eins, því hvert og eitt er sérsniðið að þörfum hvers fyrirtækis. Innleiðingin virkar þannig að þú teiknar upp hið fullkomna umhverfi í tölvupóstkerfinu þínu, með þá virkni sem Póstmenni býður upp á í huga, og teymi Menni gerir það að veruleika.
Í dag nýtir fjöldi fyrirtækja sér Póstmenni og sparar sér þannig heilmikinn tíma í hverri viku.
Ekki hika við að bóka teymi Menni í kaffibolla ef þú vilt straumlínulagaðra umhverfi í tölvupóstkerfinu þínu.
