RÚV fjallar um Raddmenni frá Menni
RÚV fjallaði um Menni og Raddmenni, gervigreindarlausn sem svarar símtölum í þjónustuverum fyrirtækja. Í fréttinni kom fram að nokkrir tugir fyrirtækja hefðu tekið þjónustuna í notkun, mörg þeirra í ferðaþjónustu, svo sem baðlón, bílaleigur og hótel, og að um 70% erinda væru afgreidd án mannlegrar aðkomu.

Róbert Híram Ágústsson, tæknistjóri Menni, sagði í fréttinni að stofnendurnir hefðu séð gat á markaðnum og þróað gervigreindarlausnir sem veita tafarlaus svör allan sólarhringinn á öllum samskiptaleiðum, meðal annars í síma.
Daníel Spanó, framkvæmdastjóri Menni, sagði viðskiptavini ekki veigra sér við því að gervigreind svari í símann. Fyrirtækið leggi mikið upp úr því að sérsníða raddmennið að hverju fyrirtæki og ljá því persónuleika, og lausnin létti álagi af þjónustuverum.
