Fara beint í efni
Allar tilkynningar
Samstarf

Fleiri bætast í hópinn hjá Menni!

Það er einstaklega ánægjulegt að tilkynna um samstarf við þrjá nýja og frábæra aðila í íslenskri ferðaþjónustu. Gervigreindarfulltrúarnir eru nú reiðubúnir til framúrskarandi þjónustu allan sólarhringinn, allan ársins hring, á vefsíðum félaganna.

Gervigreindarfulltrúarnir Rakel, Inga og Sunna hjá Visit Reykjanes, Inside the Volcano og Visit South Iceland

Visit Reykjanes Iceland (Rakel)

Gervigreindarfulltrúinn Rakel hefur hafið störf hjá Visit Reykjanes Iceland. Hún aðstoðar netverja við að skipuleggja ferðina um Reykjanesið og kanna allt það helsta sem svæðið hefur upp á að bjóða. Spjallaðu við Rakel.

Inside The Volcano (Inga)

Gervigreindarfulltrúinn Inga er orðin hluti af teyminu hjá Inside The Volcano. Inga veitir samstundis svör um þessa einstöku og ógleymanlegu upplifun. Spjallaðu við Ingu.

Visit South Iceland (Sunna)

Gervigreindarfulltrúinn Sunna starfar nú fyrir Visit South Iceland. Sunna leiðbeinir ferðamönnum um fjölbreytta afþreyingu, gistingu og áhugaverða staði á Suðurlandi. Spjallaðu við Sunnu.

Við óskum Visit Reykjanes Iceland, Inside The Volcano og Visit South Iceland innilega til hamingju með nýju stafrænu þjónustufulltrúana!

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.