Allar tilkynningar
Menni í fjölmiðlum
Slippfélagið og Menni hefja samstarf um gervigreinda þjónustu
Slippfélagið og Menni hafa skrifað undir samstarfssamning um innleiðingu gervigreindar í þjónustuferla málningarverksmiðjunnar. Vísir greindi frá. Lausnin á að svara flestöllum samskiptum viðskiptavina og annarra sem berast Slippfélaginu.

Að sögn Önnu Bergmann, markaðsstjóra Slippfélagsins, er markmiðið að stytta úrvinnslutíma fyrirspurna, veita þjónustu allan sólarhringinn og efla stafrænt aðgengi viðskiptavina að upplýsingum á yfir 100 tungumálum. Hún segir samstarfið marka mikilvægt skref í átt að framtíðarlausnum fyrirtækisins.
Í fréttinni kemur einnig fram að yfir 50 fyrirtæki nýti sér þjónustu Menni og að Menni sé styrktaraðili Blindrafélagsins og Félags heyrnarlausra.
