Fara beint í efni
Allar tilkynningar
Vörunýjungar

Persónugerving Spjallmenna

Af hverju heitir gervigreindarfulltrúi Krauma Vigdís?

Tilvitnun í Jónas Friðrik Hjartarson, framkvæmdastjóra Krauma, við hlið Vigdísar, gervigreindarfulltrúa Krauma

Hluti af innleiðingarferli fyrirtækja í þjónustu Menni felst í því að persónugera gervigreindarfulltrúann. Þessi hluti ferlisins er þrískiptur.

1. Nafn

Fyrirtæki velja nafn á gervigreindarfulltrúann sinn. Mörg fyrirtæki skíra fulltrúann í höfuðið á fyrrum samstarfsmanni eða sögulegri persónu og því er yfirleitt skemmtileg saga á bak við hverja nafngift.

2. Útlit

Þegar nafnið er komið ákveða fyrirtækin útlit fulltrúans. Þau veita Menni upplýsingar um hvernig fulltrúinn á að líta út og teymi Menni framkallar útlitið með hjálp spunagreindar (e. generative AI).

Skemmtileg staðreynd: yfir helmingur viðskiptavina Menni vildi að fulltrúinn þeirra klæddist íslenskri lopapeysu í einkennislitum fyrirtækisins.

3. Hegðun og talmáti

Að lokum ráða fyrirtækin hvernig fulltrúinn hagar sér og talar (e. tonality), með ímynd fyrirtækisins í huga. Hvort sem fulltrúinn á að vera í léttari kantinum eða ekki gerir Menni það að veruleika fyrir hvern og einn viðskiptavin.

Aðspurður um nafngiftina sagði Jónas Friðrik Hjartarson, framkvæmdastjóri Krauma:

„Mikil hugsun fór í nafnið á okkar fulltrúa en á endanum völdum við ‚Vigdís‘. Fyrst og fremst voru það fastakúnnar Krauma sem völdu nafnið, með tilvitnun í það hve algengt nafnið hafi verið í gegnum síðustu áratugi á okkar bæjarsvæði. Síðan fannst okkur flott að skíra fulltrúann okkar ‚Vigdís‘ í höfuðið á Vigdísi Finnbogadóttur, sem við þekkjum öll vel.“

Við hvetjum alla til að kíkja á vefsíðu Krauma og kynnast náttúrulaugunum betur með aðstoð Vigdísar.

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.