Fara beint í efni
Allar tilkynningar
Menni í fjölmiðlum

Freyja svarar á íslensku

Raddmennið Freyja, sem hefur svarað símtölum hjá Sjóböðunum í Hvammsvík, er nú farið að spjalla við viðskiptavini á íslensku. mbl.is greindi frá. Hingað til hafði Freyja svarað á ensku í síma, þótt hún gæti svarað á íslensku í tölvupósti og spjalli.

Freyja, raddmenni Sjóbaðanna í Hvammsvík, sýnd sem ung kona í íslenskri náttúru

Samkvæmt tilkynningu frá Menni er Freyja þar með fyrsta raddmennið sem talar íslensku. Hún hefur leyst úr um 70% símtala og sendir flóknari erindi áfram til starfsfólks í þjónustuveri Hvammsvíkur.

Fyrst um sinn svarar Freyja algengustu spurningunum, en með tímanum á hún einnig að geta veitt rauntímaupplýsingar, til dæmis um laus pláss í sjóböðunum og veðrið í Hvammsvík.

Í umfjölluninni segir Skúli Mogensen, stofnandi Hvammsvíkur, að vel fari á því að Freyja fari af stað í viku íslenskunnar og að nýjungar af þessu tagi geti hjálpað til við að varðveita íslenskuna. Róbert Híram, tæknistjóri Menni, segir fyrirtækið stefna að því að innleiða fleiri sambærileg raddmenni.

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.